Beint á efnisyfirlit þessa skjals.

Á döfinni

Seðlar gefnir

Peningaveggfóður til Umhyggju


Eitt dýrasta veggfóður Íslandssögunnar var plokkað af veggjum Þingholtsstrætis 3 á dögunum. Veggfóðrið samanstóð af 528 ekta þúsund króna seðlum. Það voru forsvarsmenn Umhyggju, félag til stuðnings langveikum börnum, sem náðu veggfóðrinu niður með forsvarsmönnum Eikar fasteignafélags hf. Tilgangur veggfóðursins var að vekja athygli forsvarsmanna íslenskra fyrirtækja á þeim kostum sem fylgja því að leigja atvinnuhúsnæði í stað þess að eiga það, auk þess sem Eik hefur hleypt af stokkunum nýrri þjónustuleið sem nefnist fasteignaráðgjöf og leit. Þjónustuleiðin er nýjung á íslenskum fasteignamarkaði og á sér ekki hliðstæðu.



Eftir að hafa skrapað alla seðlana af veggnum og komið þeim í banka, kom í ljós að einn seðillinn ?lét lífið? í átökunum. Umhyggja fékk því í sínar hendur 527.000 krónur sem renna óskiptar í styrktarsjóð Umhyggju.



Að leigja atvinnuhúsnæði hefur ótvíræða kosti fyrir fyrirtæki. Samhliða því sem fyrirtæki losa um peninga sem bundnir eru í fasteignir, geta þau eflt eigin rekstur, aukið arðsemina, losnað við óhagstæða fjármögnun og umstangið í kringum almennan rekstur fasteigna. Fjölmörg íslensk fyrirtæki hafa þegar ákveðið nýta sér þjónustu Eikar hér á landi. Þá hefur Eik tekið þátt í fjármögnun atvinnuhúsnæðis utan landsteinanna.



Sérstök börn og Umhyggja


Á hverju ári sækja á milli 20 til 30 fjölskyldur barna með langvinn veikindi um stuðning úr styrktarsjóði Umhyggju. Hver umsókn er vegin og metin af úthlutunarnefnd Umhyggju, en styrkirnir nema allt að 400.000 krónum.



?Á Íslandi eru yfir 5.000 börn með sérþarfir. Sum börnin eru langveik, önnur fötluð, þroskaheft eða með aðrar sérþarfir,? segir Ragna Marinósdóttir, formaður Umhyggju. ?Það getur verið afar kostnaðarsamt fyrir fjölskyldu að mæta öllum þeim kostnaðarliðum sem sérþörfum fylgja. Það er því afar brýnt að til séu félagasamtök sem rekin eru gagngert til þess að styðja við bakið á þeim og veita upplýsingar.?



Fyrr á þessu ári kom Umhyggja sér fyrir við Háaleitisbraut 11-13 með Landssamtökunum Þroskahjálp, AD/HD samtökunum og Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra. Þar verður nú rekin ráðgjafamiðstöðin Sjónarhóll, sem ætlað er að þjónusta og vera ráðgefandi fyrir foreldra og aðstandendur barna með sérþarfir.



?Markmiðið er að foreldrar og aðstandendur barna með sérþarfir þurfi ekki að ganga á milli stofnanna og samtaka í leit af svörum við spurningum, er kunna á þeim að brenna varðandi börnin sín. Þessar fjölskyldur eiga að geta komið beint í Sjónarhól og fengið ráðgjöf. Okkar framtíðarsýn er sú að þarna safnist saman mikil þekking þannig að við getum bent fjölskyldum og fagfólki á þau úrræði sem bjóðast?



Um Eik


Þrátt fyrir ungan aldur er Eik eitt af sterkustu fasteignafélögum landsins. Félagið var stofnað á haustmánuðum ársins 2002 og strax við upphafi ársins 2003 námu eignir félagsins 2.7 milljörðum króna. Markmið Eikar er að aðstoða fyrirtæki við að losa fé bundið í fasteignum. Það er gert með þeim hætti að eigendur fasteigna ? hvort sem um er að ræða fyrirtæki eða fagfjárfesta ? geta snúið sér til Eikar og óskað eftir því að eignin sé keypt af þeim og síðan leigð aftur til lengri eða skemmri tíma. Þá á Eik einnig atvinnuhúsnæði sem einstaklingar og fyrirtæki geta fengið til leigu undir hvers kyns atvinnurekstur.



Á sl. ári hefur Eik stækkað og dafnað og námu eignir félagsins við upphaf árs 2004 4 milljörðum króna. Eignir félagsins í dag nálgast 7 milljarða króna, að teknu tilliti til eigna hlutdeildafélaga.



Eik er í eigu Lýsingar hf. og KB banka hf. Stjórnarformaður Eikar er Sólon R. Sigurðsson, forstjóri KB Banka. Stjórnarmenn eru Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri KB Banka, og Ólafur Helgi Ólafsson, forstjóri Lýsingar. Framkvæmdastjóri Eikar er Garðar Hannes Friðjónsson.



Frekari upplýsingar gefur:

Garðar Hannes Friðjónsson,

framkvæmdastjóri Eikar

S. 590-2200

GSM. 861-3027

gardar@eik.is




Ragna Marinósdóttir,

formaður Umhyggju

S. 698-2302

ragnamar@internet.is





 

Hey!

Ef þú veist um eitthvað skemmtilegt sem við erum ekki með á vefnum sendu okkur þá endilega upplýsingar um það með því að fylla út formið, "Aðsent efni", hérna á síðunni.

 

Velkominn

Velkomin(n) á nýjan skemmtivef Umhyggju. Hér söfnum við sama öllu því skemmtilegasta sem við finnum á Vefnum.

Það geta allir hjálpast að við að safna efni og senda það til okkar.


Aðsent efni

Hér getur þú skráð skemtilegt efni inn a skemmtivefinn.

 
 

Á döfinni

Logo Umhyggju

Umhyggja opnar nýjan vef

Í dag kl. 11 opnaði Umhyggja, í samvinnu við Símann og Hugsmiðjuna nýjan og glæsilegan skemmtivef. Lesa
 
Seðlar gefnir

Peningaveggfóður til Umhyggju

Forsvarsmenn Umhyggju plokkuðu 527.000 krónur af útivegg í Þingholtsstræti. Peningarnir höfðu verið festir upp til þess að vekja athygli á nýrri þjónustuleið hjá Eik fasteignafélagi. 20-30 fjölskyldur fá úthlutað úr sjóðum Umhyggju á hverju ári. Lesa
 

 




 

efnisyfirlit síðunnar